Lausfrystir til Matorku ehf
KAPP var rétt í þessu að klára uppsetningu á plötufrysti hjá Motorku efh.
Frystirinn var áður svokallaður Súperfrystir sem hraðfrysti flök niður í -0,9°C á örfáum mínútum. Nú fær hann nýtt hlutverk í starfsstöð Matorku í Grindavík eftir að starfsmenn KAPP breyttu honum í öflugan lausfrysti / roðfrysti. Stýringin á frystinum er hönnuð af KAPP í samvinnu við Stuð ehf.
Matorka ehf var stofnuð árið 2010 og leggur megináherslu á landvinnslu fyrir Ameríkumarkað. Mikil áhersla er á hágæðavöru sem er umhverfisvæn og í stöðugum gæðum þegar komið er til endanlegs neytanda um heim allan.
Sjá myndir af uppsetningunni hér að neðan: