Aukin frystigeta í Tasemuit
KAPP er þessa dagana að ljúka við stækkun á frystigetu frystitogarans Tasemuit.
Skipið er í klössun í Reykjavík, skipt um spil o.fl. þar með talið að yfirfara allan kæli- og frystibúnað ásamt því að bæta við öflugum láréttum plötufrysti.
Verkið hefur gengið mjög vel og frystigetan Tasemuit hefur aukist til muna.
Kæliverkstæði KAPP sinnir allri almennri þjónustu á frysti- og kælitækjum, til sjós og lands, bæði á verkstæði okkar og hjá viðskiptavinum. Á verkstæðinu er einnig unnið að framleiðslu á OptimICE ískrapavélum og forkælum.
Taesmuit er frá Grænlandi og er í eigu Nanoq Seafood.