Ammoníakskerfi í Guðrúnu Þorkelsdóttir SU 211
Starfsmenn KAPP ehf vinna þessa dagana við það að skipta út RSW kælibúnaði í uppsjávarskipi ESKJU Guðrúnu Þorkelsdóttir SU 211.
Um er að ræða útskipti á freon kerfi en í stað þess kemur 2 x 1000 kW ammoníaks kerfi sem að KAPP seldi og setur upp.
Þetta er talsverð nákvæmnisvinna þar sem starfsmenn KAPP m.a. skera úr dekki skipsins til að taka út eldri kælibúnað og koma fyrir nýjum ásamt niðurifi á lögnum og endurnýjum á þeim.