Uppsetning á hraðfrystigámum frá Titan Container AS
Nýlega setti KAPP upp umhverfisvæna Blast Freezer frystigáma frá Titan Containers AS hjá tveimur fyrirtækjum í Hafnarfirði, Omega 3 og Stakkholti. Báðir gámarnir eru 20 feta langir.
Gámarnir eru með mjög öflugri hraðfrystingu og kæla niður í -40°C.
Frystitíminn er um 60% hraðari en á hefðbundnum frystigámum.
Umgangur um gámana er mjög þægilegur þar sem þeir hafa heilopnun í báða enda og því jafnvel hægt að keyra í gegnum þá á lyftara.
Hægt er að fá gámana í ýmsum stærðum og gerðum með kælingu frá +30°C niður í -65°C. Dæmi um hraða frystingarinar er að þeir frysta heilan gám af ópakkaðri vöru, t.d. fiski á grindum niður í -40°C á 1-2 klst.