Samsettir gámar hjá ESJU Gæðafæði
KAPP setti upp samsetjanlega kæli- og frystigámar hjá ESJU Gæðafæði til að stækka kæli- og frystigeymslur í kjötvinnslu þeirra við Bitruháls.
Steyptur grunnur var undir gámana til að hafa þá í sömu hæð og gólfflötur kjötvinnslunnar. Margir möguleikar eru á undirstöðum fyrir gámana sem þurfa einungis séttan flöt sem er nokkuð traustur.
Eins og sjá má á meðfylgandi mynd þá er eru samsettu gámarnir eitt stórt rými og endalaust er hægt að bæta við fleiri gámum eftir þörfum á hverjum stað. Einnig er hægt að skipta rýminu í hólf og hafa mismunandi hitastig í hverju hólfi.
Settir voru saman fjórir gámar, þar af þrír kæli- og frystigámar, á lóð ESJU Gæðafæði og tengdir með við húsnæði kjötvinnslunnar og Dynaco hraðhurð heldur hitastiginu réttu.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum mynda gámarnir eitt stórt rými en möguleiki er að skipta rýminu í fjögur hólf öll með mismunandi hitastigi.
Óendanleg stærð á samsetjanlegum gámum
Hægt er að fá stærri rými úr öllum gerðum að af gámum, hvor sem þeir eru kæligámar, fyrstigámar, lyfjagámar, hitagámar eða bara hefðbundir gámar án upphitunar.
Hægt er að raða þeim saman nánast endalaust og jafnvel upp á fleiri hæðir. Ekki eru gerðar mikið meiri kröfur með undirlagið annað en að það sé slétt og nokkuð traust.
Í meðfylgjandi myndböndum sést hve auðvelt er að setja saman gámana og skipta þeim í mismunandi hitahólf eftir þörfum hvers og eins nú eða bara hafa gáman með einu stóru rými.
Kæli- og frystigámar
Gámasamsetning
KAPP gámar
KAPP er umboðsaðili fyrir Titan Containers sem eru með starfsemi nánast um allan heim og bjóða upp á allar tegundir af gámum hvort sem það er til sölu eða leigu. ArticStore gámarnir eru stoltið þeirra en það eru kæli- og frystigámar með frystigetu frá +45°C og niður í -80°C.
Hér í meðfylgjandi hlekk má sjá nánar um KAPP gáma.
ESJA Gæðafæði
Esja Gæðafæði, sem var stofnað 1989, hefur byggt upp stóra og öfluga kjötvinnslu sem sinnir bæði mötuneytum, veitingahúsum, verslunum og öðrum þeim sem sækjast eftir góðum vörum á sanngjörnu verði.
Starfsemi KAPP
KAPP er fjölþætt fyrirtæki með áherslu á kælingu fyrir öll fyrirtæki og flutningabíla ásamt innflutningi á fjölmörgum vörum tengdri kælingu, t.d. gámum, kæli- og frystiklefum, hurðum og kælipressum. Aðrar deildir eru ryðfrí stálsmíði, renniverkstæði, vélaverkstæði og framleiðsludeild sem smíðar t.d. OptimICE® krapavélar sem eru seldar um allan heim, sprautuvélar fyrir matvælaframleiðslu, hnífabrýni ásamt ýmsu fleiru.
Myndir frá uppsetningunni
Hér fyrir neðan eru myndir sem sýna uppsetninguna á gámunum en það tók einungis um tvo daga að setja þá saman, einangra og koma rafmagninu í samband en það er nánast „plug & play“.