OptimICE hraðkæling sett í tvö skip
Undanfarna daga hefur verið unnið að því að setja OptimICE ísþykknibúnað í tvö skip, Ottó N. Þorláksson VE-5 og Gullver NS-12.
Ottó N. Þorláksson, sem er í eigu Ísfélags Vestmannaeyja, er 50m langur skuttogari smíðaður í Garðabæ 1981. Hann er 878 brúttótonn og 264 nettótonn, gerður út frá Vestmannaeyjum. Ísþykknibúnaður sem settur var í Ottó er BP-130 krapavél og T-4000 forðatankur.
Gullver, sem er í eigu Síldarvinnslunnar hf, er 50m langur skuttogari smíðaður í Noregi 1983. Hann er 674 brúttótonn og 202 nettótonn, gerður út frá Seyðisfirði. Ísþykknibúnaður sem settur var í Gullver er BP-130 krapavél og T-3000 forðatankur.
Við óskum útgerðum og áhöfnum skipanna til hamingju með nýja hraðkælandi ísþykkninbúnaðinn.
OptimICE hraðkæling
OptimICE® er fljótandi krapaís sem framleiddur er úr sjó um borð í skipinu og leysir af hólmi hefðbundinn flöguís.
Hraðkælingin umlykur fiskinn, kemur honum hratt niður fyrir 0°C og heldur honum í kringum -0,5 °C allan veiðitúrinn, í löndun, í flutningi þvert í kringum landið og allt til endanlegs viðskiptavinar.
Kælikeðjan rofnar því aldrei með OptimICE® hraðkælingu og fiskurinn helst ferskur í hámarksgæðum allan tímann.