OptimICE® ískrapakerfi í grænlenska togaranum Tasermiut
Starfsmenn KAPP vinna þessa dagana við að uppfæra og yfirfara OptimICE ískrapakerfi í grænlenska togaranum Tasermiut.
Togarinn, sem er í eigu Nanoq Seafood, var byggður í Noregi 1988 er 77m langur og 2500 brúttótonn.
Vinnan gengur vel og reikna KAPP menn og útgerðin með að vinnu ljúki seinna í mánuðinum.