Nýr Kaldbakur EA1 með Optim-ICE® kælingu frá KAPP
Uppsetning er nú á fullu hjá Slippfélaginu Akureyri á vinnslubúnaði í nýjum Kaldbak EA1 sem er í eigu Samherja.
Að sögn Hjörvars Kristjánssonar, verkefnastjóra nýsmíða hjá Samherja, er lögð mikil áhersla á öfluga blæðingu, þvott og góða kælingu á fisknum og er hann fullviss að gæði afurða úr Kaldbak verði framúrskarand.
Optim-ICE® kælibúnaður frá KAPP er í Kaldbak. BP-130 krapavél og T-4000 forðatankur.
Kælibúnaðurinn hefur á undanförnum tuttugu árum sannað sig sem sérlega góð kæling fyrir útgerðir og fiskvinnslur.
Optim-ICE® er fljótandi ís sem leysir af hólmi hefðbundinn flöguís og er framleiddur um borð í skipinu. Kælingin umlykur fiskinn og heldur honum í kringum 0 °C allan fiskveiðitúrinn, í löndum, í flutningi þvert í kringum landið, til annarra landa og allt til endanlegs viðskiptavinar.
Kælikeðjan rofnar því aldrei með Optim-ICE® kælingu.
Sjá nánar í fréttum: