Nýr umhverfisvænn RSW kælimiðill í Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211
Nú á dögunum var lokið við að skipt um kælikerfi í uppsjávarskipinu Guðrúnu Þorkelsdóttur SU 211 þar sem nýtt RSW kerfi með umhverfisvænum ammoníakskælimiðli var sett upp.
Starfsmenn KAPP hafa unnið við uppsetninguna á undanförnum vikum enda er verkið viðamikið vandasamt.
RSW ammoníakskerfið er einstaklega umhverfisvænt og mun umhverfisvænna en R22 freonkælikerfið sem var áður í skipinu.
Við óskum eigendum og starfsfólki ESKJU og áhöfn Guðrúnar Þorkesdóttur til hamingju með nýja umhverfisvæna kælimiðilinn.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá verkstað við Reykjavíkurhöfn.