KAPP á Seafood Expo Russia
Eins og undanfarin ár er KAPP með bás á rússnensku sjávarútvegssýningunni Seafood Expo Russia sem haldin er í Saint Petersburg 10-12 júlí.
Mikill uppgangur er í sjávarútvegi í Rússlandi og ásóknin í sýninguna eftir því. Yfir 300 sýnendur taka þátt í 13.000 fm sýningarhöll. Yfir 7.000 kaupendur koma á sýninguna frá 30 fylkjum Rússlands og yfir 50 löndun.
Heimir Halldórsson þjónustustjóri KAPP og Freyr Friðriksson eigandi KAPP eru á sýningunni ásamt starfsmönnum rússnensku söluskrifstofu KAPP í Murmansk.
Mikil ánægja er með sýninguna enda er hún öflugusta sjávarútvegssýning Rússlands á hverju ári sem haldin er af einkaaðilum.