G.RUN og KAPP undirrita samning á Sjávarútvegssýningunni
Sjávarútvegsfyrirtækið G.RUN í Grundarfirði og KAPP ehf undirrituðu á sjávarútvegssýningunni í dag samning um ísframleiðslubúnað og sjálfvirkt dreifikerfi til að viðhalda lágu hitastigi á hráefninu í gegnum framleiðsluferlið.
Að sögn Guðmundar Smára Guðmundssonar framkvæmdastjóra G.RUN mun búnaðurinn verða settur upp í fiskvinnsluna í Grundarfirði sem er sú nýjasta á landinu og ein fullkomnasta í Evrópu.
Um nýjan ísframleiðslubúnað er að ræða þar sem ákveðnu magni af ís er dreift inn á framleiðslulínuna til að tryggja að hitastig hráefnisins haldist stöðugt.
Að sögn Freys Friðrikssonar, eiganda KAPP ehf, er hann afar ánægðir með þennan samning við G.RUN sem inniheldur ekki bara ísframleiðslubúnaðinn, snígilbúnaðinn og dreifikerfið, heldur er búnaðurinn líka þannig framleiddur og uppsettur að varminn sem myndast við framleiðslu á ísnum er nýttur til upphitunar á ákveðnum hluta fiskvinnslu hússins, sem er nýjung.
Hér fyrir neðan eru myndir frá undirrituninni á Sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll.