Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

Frábæri sjávarútvegssýning í Barcelona lokið

Freyr Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson undirrituðu samning á sjávarútvegssýningunni í Barcelona. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr sjávarútvegsráðherra var viðstödd.

 

KAPP er á hverju ári með bás á sjárvarútvegssýningunni í Barcelona

Í ár var fjölmennnasta sýningin frá upphafi þar sem yfir 2.200 fyrirtæki frá 87 löndum voru að sýna vörur sínar. KAPP var á Íslandsbásnum sem Íslandsstofa bjó til umgjörð um fyrir íslensku fyrirtækin sem voru fjölmörg að vanda.

KAPP básinn var mjög fjölsóttur alla daga sýningarinnar þar sem kynntar voru nýjar vörur fyrir sjárvarútveginn:

  • Ný CO2 umhverfisvæn krapavél, sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum.
  • Saltsprautuvél og nálaþvottavél sem er nýtt hjá KAPP.
  • Hnífabrýni fyrir hringhnífa, hágæða brýni á frábæru verði.

Einnig var áhersla á að kynna stýringar, óson hreinlætislausnir og súrefniskerfi.

Brim fjárfestir í umhverfisvæna kælibúnaðinum frá KAPP

Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP ehf., og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, undirrituðu samning þess efnis að Brim fái OptimICE krapavélar frá KAPP í skipin Akurey AK10 og Viðey RE50.

Þetta er mikilvægt skref fyrir KAPP að hafa gert þennan samning við Brim og sýnir að sá búnaður sem KAPP framleiðir undir vörumerkinu OptimICE er að virka mjög vel þegar kemur að kælingu á hráefnum fyrir kröfuharðan sjávarútveg. Við erum í stöðugri sókn með okkar vörur og þjónustu, ásamt því að þróa nýjan búnað og lausnir fyrir sjávarútveginn. Við tökum þátt í þeirri vegferð sem íslensk sjávarútvegur er á í umhverfis- og rekstrarmálum þegar kemur að kælingu aflans," segir Freyr.

OptimICE er hraðkælikerfi bæði til sjós og lands sem framleiðir ískrapa úr sjó. Fljótandi ísskrapinn umlykur fiskinn og kælir hann hratt niður fyrir 0°C og heldur hitastigi um -0,5°C. Einnig tryggir ískrapinn rakastig fisksins ásamt því að drena vel frá fiskinum sem viðheldur ferskleika fisksins.

Fyrsta fjöldaframleidda CO2 vélin

,,Þetta er mjög jákvætt skref fyrir Brim að landa þessum samningi. Við erum að mörgu leyti í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og lausnum í sjávarútvegi. Ég tala nú ekki um þegar kemur að umhverfis- og rekstarþættinum sem spilar stórt hlutverk við þessa ákvarðanatöku," segir Guðmundur.

Nýja vélin er fyrsta krapavélin með CO2 sem er fjöldaframleidd í heiminum. Hún er í boði fyrir allar OptimICE krapavélar. Öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur verið hjá KAPP þar sem allar krapavélar eru framleiddar. Orkunýtni nýju vélarinnar er mun betri heldur en í eldri vélum.

Freyr segir að mikil áhersla hafi verið hjá útgerðum hjá Íslandi og í Evrópu að minnka kolefnisspor sitt og er nýja vélin því byltingakennd í þeim aðgerðum. ,,Með nýju krapavélinni næst enn einn áfangi í að lækka kolefnissportið hjá sjávarútvegsfyrirtækjum um allan heim. CO2 kælikerfið er 100% vistvænt og hannað til að halda kolefnissporinu í algeru lágmarki en á sama tíma minnka rekstrarkostnað," segir Freyr.

Valþór Hermannsson KAPP

Valþór Hermannsson, þróunarstjóri KAPP og Pétur Bergmann Árnason framkvæmdastjóri Haukamýris skrifa undir samningana.

Fiskeldið Haukamýri og KAPP undirrituðu samninga um súrefnisbúnað og þjónustu

Fiskeldið Haukamýri og KAPP undirrituðu samninga á sjávarútvegssýningunni í Barcelona. Fiskeldið hefur fest kaup á búnaði til súrefnisframleiðslu en auk þess var gerður þjónustusamningur. Stefnt er á setja upp búnaðinn í lok árs og með því mun fiskeldið auka súrefnisframleiðslu sína um 50%.
„Það er ánægjulegt að hafa tekið þátt í uppbyggingu fiskeldissins Haukamýri síðasta áratug og sjá hversu öflugt fyrirtæki þetta er orðið.
Þetta styrkir áralangt ánægjulegt samstarf fyrirtækjanna.“ segir Valþór Hermannsson, Þróunarstjóri KAPP.

 

 

Back

More news

  • Ozone deodorization for restaurants

    Ozone deodorization for restaurants

  • Great development of refrigeration and freezer equipment. A revolution in the treatment of raw materials.

    Great development of refrigeration and freezer equipment. A revolution in the treatment of raw materials.

  • KAPP and Eðalfiskur's Groundbreaking Partnership at Aqua Nor

    KAPP and Eðalfiskur's Groundbreaking Partnership at Aqua Nor

  • Cooling pelagic fish using OptimICE slurry ice machine while landing the catch

    Cooling pelagic fish using OptimICE slurry ice machine while landing the catch

  • Interview with Freyr Fridriksson in Morgunbladid, many opportunities ahead.

    Interview with Freyr Fridriksson in Morgunbladid, many opportunities ahead.

  • CO2 for all OptimICE Liquid ice machines

    CO2 for all OptimICE Liquid ice machines

  • New OptimICE liquid ice machine for smaller boats

    New OptimICE liquid ice machine for smaller boats

  • KAPP buys RAF ehf

    KAPP buys RAF ehf