Arnarnesvegur samþykktur, stórbætt aðgengi að nýjum höfuðstöðvum KAPP
Enn betri samgöngur við nýjar höfuðstöðvar KAPP að Turnahvarfi í Kópavogi.
Náðst hefur samstaða með Vegagerðinni, Reykjavík og Kópavogi um útfærslu á mislægum gatnamótum Arnarnesvegar við Breiðholtsbrautina.
í frétt Vegagerðarinnar segir að unnið sé að endanlegri úfærslu og að verkið verði væntanlega boðið 2021.
Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir KAPP þar sem samgöngur við helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins verða stórbættar eins og sést á meðfylgjandi myndum.
Nú verður aðgengi flutningabíla að KAPP eins góð og kostur er, bæði vegir til og frá KAPP og ekki síður að bílastæðum á lóðinni sem eru sérhönnuð að þjónustu við flutningabíla.
Á meðfylgjandi myndum sést hvernig nýji vegurinn verður.