Allir aflahæstu línubátarnir með Optimice krapakerfi

Allir aflahæstu línubátarnir með Optimice krapakerfi

Mjög góð línuveiði var á síðasta ári þar sem 35,5 þúsund tonn veiddust. Aflahæsti báturinn var Sighvatur GK 57 með 4.396 tonn.

Sjö aflahæstu línubátarnir eru allir með OptimICE krapakælingu frá KAPP og átta af tíu efstu. Krapakælingin hefur marg sannað sig sem yfirburða kæliaðferð sem auðveldar störf og skilar betri gæðum aflans. Hraðkælingin er fljótandi krapi, framleiddur um borð, sem kælir aflann margfalt hraðar en hefðbundinn flöguís og heldur honum undir frostmarki allan veiðitúrinn. 

Sighvatur GK er frægt aflaskip sem á m.a. Íslandsmetið í einum túr hjá línubáti þegar hann kom með 165,5 tonn að landi. Sló þar met Jóhönnu Gísladóttur GK sem var 153,9 tonn. Jóhanna var næst aflahæst á síðasta ári. Báðir þessir aflabátar eru gerðir út af Vísi hf í Grindavík.

Af þessum tíu efstu aflaskipum komu fimm frá Grindavík og þrú frá Rifi. Öll voru þau með Optimice krapkælingu og hafa verið með í mörg ár.

Hér fyrir neðan er listi yfir tíu aflahæstu línuskipin 2020: 

Nr.
Bátur
Tonn
Útgerð
Höfn
Kæling
1
Sig­hvatur GK 57
4.396
Vísir hf
Grindavík
OptimICE
2
Jó­hanna Gísla-
dótt­ir GK 557
4.068
Vísir hf
Grindavík
OptimICE
3
Fjöln­ir GK 157
3.912
Vísir hf
Grindavík
OptimICE
4
Tjald­ur SH 270
3.467
KG fiskverkur
Rif
OptimICE
5
Páll Jóns­son GK 7
3.244
Vísir hf
Grindavík
OptimICE
6
Örvar SH 777
2.937
HH
Rif
OptimICE
7
Rifs­nes SH 44
2.681
HH
Rif
OptimICE
8
Hörður Björns­-
son ÞH 260
2.386
GPG Seafood
Raufarhöfn
9
Núp­ur BA 69
2.351
Oddi hf
Patreks-
fjörður
OptimICE
10
Hrafn GK 111
2.113
Þorbjörn hf
Grindavík
 

Þessi glæsilega mynd hér fyrir ofan er af Sighvati GK 57 eldri. Ný Sighvatur var tekinn í notkun fyrir tveimur árum en okkur finnst myndin svo flott að við stóðumst ekki mátið að nota eldri Sighvat sem aðalmynd. Myndin af nýja Sighvati er hér fyrir neðan.

Myndin af eldri Sighvati er fengin af facebook síðunni Bátar og bryggjurölt sem Jón Steinar Sæmundsson verkstjóri hjá Vísi hf í Grindavík tók. 

 

 

Back

More news

  • Olafur Karl Sigurdarson Appointed as Deputy CEO of KAPP

    Olafur Karl Sigurdarson Appointed as Deputy CEO of KAPP

  • KAPP Partners with Atlas Premium Seafoods to Implement Trusted OptimICE® Technology

    KAPP Partners with Atlas Premium Seafoods to Implement Trusted OptimICE® Technology

  • Congratulations to Vísir hf. on Their New Injection Machine System

    Congratulations to Vísir hf. on Their New Injection Machine System

  • Ny-Fiskur-CO2-OptimICE-Liquid-Ice-Machine

    Ný-Fiskur Embraces Sustainability with New CO2 Liquid Ice Machine from KAPP

  • Ozone deodorization for restaurants

    Ozone deodorization for restaurants

  • Great development of refrigeration and freezer equipment. A revolution in the treatment of raw materials.

    Great development of refrigeration and freezer equipment. A revolution in the treatment of raw materials.

  • KAPP and Eðalfiskur's Groundbreaking Partnership at Aqua Nor

    KAPP and Eðalfiskur's Groundbreaking Partnership at Aqua Nor

  • Cooling pelagic fish using OptimICE slurry ice machine while landing the catch

    Cooling pelagic fish using OptimICE slurry ice machine while landing the catch

  • Interview with Freyr Fridriksson in Morgunbladid, many opportunities ahead.

    Interview with Freyr Fridriksson in Morgunbladid, many opportunities ahead.

  • CO2 for all OptimICE Liquid ice machines

    CO2 for all OptimICE Liquid ice machines

  • New OptimICE liquid ice machine for smaller boats

    New OptimICE liquid ice machine for smaller boats

  • KAPP buys RAF ehf

    KAPP buys RAF ehf