60 ár á rennibekknum
Á morgun laugardaginn 21. maí á Galdramaðurinn okkar 75 ára afmæli.
Í tilefni af því var dreginn upp gamall siður og starfsmenn KAPP skáluðu fyrir afmælisbarninu í eðal Coginac.
Aðalsteinn, Alli, Aðalsteinsson var 15 ára að vinna á traktór og rakst aðeins í með skólfuna sem dældaðis þannig að hún þurfti að fara í viðgerð.
Þar sá Alli rennibekk í fyrsta skipti og þá voru örlögin ráðin. Hann gekk rakleiðis upp í skóla og innritaði sig í rennismíði og hefur verið á rennibekkunm allar götur síðan.
Á þessum 60 árum hefur Alli afrekað margt bæði hér á Íslandi og eins í Danmörku þar sem hann starfaði um tíma.
Við hjá KAPP óskum honum til hamingju með 60 ára starfsafmælið, 75 ára afmælið á morgun og einstaklega farsælan starfsferil.
Alli mætir fyrstu í vinnu alla daga og við vonum svo innilega að við megum njóta galdra hans sem lengst.