Uppsetning á OptimICE krapavél í Suður Kóreu
Þessa dagana eru starfsmenn KAPP að setja upp OptimICE krapavél í Busan í Suður Kóreu.
Þetta er eitt af mörgum verkefnum KAPP fyrir Rússa sem að undanförnu hafa aukið áherslu á sjávarútveginn með það að markmiði að styrkja hann og nútímavæða.
OptimICE krapavélin, af gerðinni BP-130, hefur margsannað sig um allan heim fyrir að auk gæði sjávarafurða með afburða kælingu og tryggir að kælikeðjan rofnar aldrei, allt frá veiðum, í uppskipun og í flutningi.
Krapavélin fer í skip sem er í eigu Collectiv Farm Fishery by V.I. Lenin, einu af stærstu útgerðum Rússlands.
KAPP óskar V.I. Lenin til hamingju með nýju krapavélina.
Meðfylgjandi myndir eru af skipinu í höfninni í Busan í Suður Kóreu.